Opið hús

Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis og Grófin Geðrækt fluttu nýlega í nýtt húsnæði að Glerárgötu 24. - 3. og 4. hæð.

Okkur langar að fagna þessum tímamótum með gestum og bjóðum ykkur á opið hús laugardaginn 2. maí milli kl. 13 - 16.

Fulltrúar Oddfellow reglunnar verða sérstakir gestir en þeir lögðu til og innréttuðu húsnæðið fyrir félögin.

Við erum spennt að taka á móti ykkur, sýna nýja og frábæra aðstöðu og spjalla við ykkur um starf félaganna.

Hlökkum til að sjá ykkur!