Opið hús miðvikudaginn 13. desember

Miðvikudaginn 13. desember verður opið hús hjá Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis milli kl.15:00-16:00, að Glerárgötu 34, 2. hæð.

Opna húsið er hugsað fyrir alla sem hafa áhuga að kynnast starfsemi félagsins og sjá hvað er í boði fyrir fólk sem greinist með krabbamein og aðstandendur þeirra.

Kaffi, spjall, jólastemming og allir velkomnir.