Opnunarhátíð og Bleikur dagur 12. október

Opnunarhátíð og Bleikur dagur 12. október kl.16:00 - 18:00 í nýja húsnæðinu, Glerárgötu 34, 2.hæð. 

Þér/ykkur er boðið á opnunarhátíð KAON.

Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis hefur flutt í nýtt húsnæði, Glerárgötu 34, 2. hæð.

Föstudaginn12. október kl.16:00 ætlum við að fagna þessum stóru tímamótum með því að hafa opið hús hjá okkur.

Boðið verður upp á léttar veitingar og tónlistaratriði.

Það væri okkur sönn ánægja ef þú/þið mynduð gleðjast með okkur.

Stjórn og starfsmenn KAON