Para- og kynlífsráðgjöf 3.nóvember

 

Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis býður upp á para- og kynlífsráðgjöf fimmtudaginn 3. nóvember. Frekari upplýsingar og tímabókanir eru á kaon@krabb.is eða síma 4611470.

Ráðgjöfin er ætluð þeim sem greinst hafa með krabbamein og/eða aðstandendum þeirra. Jafnt pör sem einstaklingar geta nýtt sér ráðgjöfina. Tilgangurinn er að vinna að bættu kynheilbrigði og að takast á við breytingar í kjölfar veikinda.

  • Ráðgjafi er Áslaug Kristjánsdóttir hjúkrunar- og kynfræðingur.