Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka - Hlauptu þína leið

Þó svo að formlegu Reykjavíkurmaraþoni hafi verið frestað býðst hlaupurum að hlaupa sína leið og styrkja gott málefni.

Þeir hlauparar sem ætla að hlaupa fyrir Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis hafa myndað hóp sem ætlar að hlaupa saman núna á laugardaginn 4. september. Hópurinn ætlar að hittast kl. 10:45 við afleggjarann á Kristnesi í Eyjafjarðarsveit og hlaupa að Krabbameinsfélaginu í Glerárgötu 34. Þessi leið er 10 km, eins er hægt að hlaupa frá afleggjaranum að Kjarnskógi að félaginu, en það eru 5 km.

Við Krabbmeinsfélagið verður móttökunefnd.

Allir sem hafa áhuga á að hlaupa með hópnum er það velkomið, eins að vera í móttöku og hvatningar liði.  

Við hvetjum alla til að styrkja þessa mögnuðu hlaupara!

Hér er hægt að sjá þá sem skráðir eru og heita á þá!

Ég hleyp af því ég get það!