Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 2022

Frá vinstri, Sigurlaug, Anna Berglind, Sunna
Frá vinstri, Sigurlaug, Anna Berglind, Sunna

Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fór fram seinasta laugardag og var þvílíkur kraftur sem var í hlaupurunum þrátt fyrir erfiðar hlaupaaðstæður.

Í ár voru fjórir hlauparar sem hlupu til styrktar Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis og voru það Anna Berglind Pálmadóttir, Helgi Rúnar Pálsson, Sigurlaug Níelsdóttir og Sunna Sævarsdóttir. Í heildina söfnuðu þau 236.000 krónur til styrktar félagsins. 

 

Takk Anna Berglind, Helgi Rúnar, Sigurlaug & Sunna fyrir stuðninginn.

Með því að leggja okkur lið hafi þið stutt við fólk sem greinist með krabbamein og aðstandendur þeirra.