Samúðarþreyta - Fyrirlestur fyrir heilbrigðisstarfsfólk

Samúðarþreyta – Fyrirlestur fyrir heilbrigðisstarfsfólk

Fimmtudaginn 11. apríl býður Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis heilbrigðisstarfsfólki á fyrirlestur um Samþúðarþreytu með Katrínu Ösp Jónsdóttur.

Katrín Ösp er hjúkrunarfræðingur að mennt og starfar hjá Heilsu og Sálfræðiþjónustunni en hún er fyrrum starfsmaður Krabbameinsfélagssins. Katrín hefur sérhæft sig í starfstengdum áföllum og örmögnun (samúðarþreytu).

Fyrirlesturinn er 11. apríl kl. 18:00 á veitingarstaðnum MÓI Bistro sem er í Menningarhúsinu Hofi.

Fyrirlestur og umræður eru um klukkutími, svo verður boðið upp á súpu og brauð.

Þátttaka ókeypis.

Skráning er nauðsynleg, hér er hægt að skrá sig.

Til að fá frekari upplýsingar er hægt að hringja í Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis í síma: 461-1470.

Við hlökkum til að sjá sem flesta heilbrigðisstarfsmenn, ef aðrir hafa áhuga á að mæta er hægt að hafa samband.