Skrautritunarnámskeið 13. desember

Vaiva hjá Studio Vast
Vaiva hjá Studio Vast

Vilt þú bæta þig í skriftinni fyrir jólakortin?

Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis í samstarfi við Vaivu hjá Studio Vast bjóða upp á skrautritunarnámskeið. Vaiva er grafískur hönnuður og skrautritari með mikla ástríðu á leturgerðum og nútímalegri skrautritun. Á námskeiðinu er æfð skrautritun með gæða brush penna og teiknipenna en þeir eru einfaldir í notkun og svo er hægt að halda áfram að æfa sig heima.  Námskeiðið er ætlað einstaklingum sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendum þeirra. Í boði verða léttar veitingar, jólatónlist og allir velkomnir sem vilja í jólapeysum. 

 

Hvenær: Þriðjudaginn 13. desember kl. 16-19. 
Hvar: Skrifstofu félagsins, Glerárgötu 34.
Skráning: Með því að senda tölvupóst á kaon@krabb.is eða hringja í síma 461-1470. Efniskostnaður er 2000 kr á mann og pennarnir fylgja heim.