Skrautritunarnámskeið með Vaivu 17. janúar og 31. janúar
Skrautritunarnámskeið með Vaivu 17. janúar og 31.janúar
Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis í samstarfi við Vaivu hjá Studio Vast bjóða upp á skrautritunarnámskeið. Vaiva er grafískur hönnuður og skrautritari með mikla ástríðu á leturgerðum og nútímalegri skrautritun. Á námskeiðinu er æfð skrautritun með gæða brush penna og teiknipenna en þeir eru einfaldir í notkun og svo er hægt að halda áfram að æfa sig heima.
Námskeiðið er ætlað einstaklingum sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendum þeirra.
Í boði verða léttar veitingar.
Hvenær: Þriðjudaginn 17. janúar kl.16:30-19:30. - FULLT
Þriðjudaginn 31. janúar kl.16:30-19:30. - laus pláss
Hvar: Skrifstofu félagsins, Glerárgötu 34.
Skráning: Með því að senda tölvupóst á kaon@krabb.is eða hringja í síma: 461-1470.
Efniskostnaður er 2.000 kr. á mann og pennarnir fylgja heim. Þau sem hafa komið á námskeið áður og eiga pennana þurfa ekki borga efniskostnað.