Styrkur frá Garn í gangi og Hafdísi Priscilla

Stelpurnar í Garn í gangi, Hafdís og Jón.
Stelpurnar í Garn í gangi, Hafdís og Jón.

Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis barst í sumar styrkur frá stelpunum í versluninni Garn í gangi og leir snillingnum henni Hafdísi Priscilla.

Hafdís kynntist leirnum í gegnum Ljósið - endurhæfingu fyrir Krabbameinsgreinda árið 2019 og finnst fátt eins skemmtilegt og gott að mæta á leirverkstæðið og skapa.

Hafdís seldi bollana sína í versluninni Garn í gangi og gáfu þær ágóðann af sölunni, 50.000 krónur til Krabbameinsfélags Akureyarar og nágrennis.

Jón Gunnlaugur stjórnarmeðlimur Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis tók á móti styrknum fyrir hönd félagsins.

 

Við þökkum þessum yndislegu konum kærlega fyrir þeirra stuðning.

 

Hér er hægt að fylgjast með Hafdísi og leirnum.