Styrkur frá Norðurorku

Fimmtudaginn 17. Febrúar úthlutaði Norðurorka styrkjum til samfélagsverkefna í Menningarhúsinu Hofi.

Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis var svo heppið að eiga eitt af 39 verkefnum sem hlutu styrk að þessu sinni og nam heildarfjárhæð styrkjanna sjö milljónum króna.

Við hlutum styrk fyrir almennum rekstri, eða upphæð sem dugar fyrir 20 viðtalstímum hjá ráðgjafa okkar.  En öll okkar þjónusta er fólki að kostnaðarlausu, svo þessi styrkur kemur sér einstaklega vel í okkar starfi.

Við hjá Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis þökkum Norðurorku kærlega fyrir!