Styrkur í minningu Aðalbjörgu Hafsteinsdóttur

Hólmfríður Jóhannsdóttir og Eva Björg
Hólmfríður Jóhannsdóttir og Eva Björg

Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis fékk á dögunum styrk í minningu Aðalbjörgu Hafsteinsdóttur jóga og líkamsræktarfrömuðar.

Hér með afhendi ég Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis gjöf að upphæð kr. 370.000 sem safnaðist í tengslum við minningartíma um Aðalbjörgu Hafsteinsdóttur jógakennara og líkamsræktarfrömuðar á Akureyri.

Aðalbjörg lést 8. ágúst síðastliðinn eftir langa baráttu við brjóstakrabbamein. Hún var áberandi í bæjarlífinu á Akureyri meðan hún bjó hér þar sem hún var einn af eigendum Líkamsræktarinnar Bjargs ásamt eiginmanni sínum Ólafi Óskarssyni. Hún var elskuð og dáð af öllum sem til hennar þekktu vegna sérstaklega góðrar nærveru og hvað hún var yndisleg manneskja.

Eftir að hún greindist með krabbamein og meðan hún bjó hér á Akureyri var hún dugleg að nýta sér það sem krabbameinsfélagið bauð uppá og var afar ángæð með þá þjónustu og hlýlega viðhorfið sem ríkir þar. Því kom ekki annað til greina en að safna fyrir þetta félag þegar ég ákvað að halda þennan minningar og styrktartíma fyrir þessa dásamlegu vinkonu mína. Með von um að þessi gjöf komi að góðum notum fyrir ykkur.

Hólmfríður Jóhannsdóttir

 

Félagið þakkar Hólmfríði og öllum sem lögðu söfnuninni lið kærlega fyrir stuðninginn.

Ákveðið hefur verið að nýta fjárhæðina í yoga námskeið fyrir okkar félagsmenn og aðstandendur, allt í anda Aðalbjörgu.