Þér er boðið í afmæli
Kæri félagi,
Krabbameinsfélag Íslands fagnar 75 ára afmæli í ár og heldur upp á það með afmælisveislu á fjórum stöðum á landinu, meðal annars í Hofi á Akureyri 8. sept. Kl. 17-19.
Félagið rekur fjölbreytt starf sitt alfarið fyrir stuðning frá fólki og fyrirtækjum í landinu og okkur langar að nýta stórafmælið til að þakka fyrir stuðninginn.
Jón Ólafsson tónlistarmaður stýrir veislunni og skemmtir, ásamt Hildi Völu Einarsdóttur, söngkonu.
Við njótum góðra veitinga, gleðjumst í góðra vina hópi og fögnum þeim áföngum sem hafa náðst.
Okkur þætti afar vænt um ef sæir þér fært að fagna með okkur og þér er að sjálfsögðu velkomið að taka með þér gest.
Við hlökkum til að sjá þig.
Halla Þorvaldsdóttir
Framkvæmdarstjóri Krabbameinsfélagsins
Ég þigg boð í 75 ára afmælisveislu Krabbameinsfélagsins – Fylltu út eyðublað