Tímabókanir hjá félagsráðgjafa

Fimmtudaginn 24. nóvember fáum við Hörpu Ásdísi félagsráðgjafa til okkar frá ráðgjafarteymi Krabbameinsfélagsins. Þeir sem hafa áhuga á að bóka viðtal hjá henni geta hringt og pantað í síma 461-1470 eða með því að senda okkur póst á kaon@krabb.is. Harpa sinnir félagsráðgjöf og hefur lokið viðbótarnámi í hugrænni atferlismeðferð og hefur mikla reynslu á að vinna með kvíða og þunglynd. Harpa mun nýta það nám áfram undir handleiðslu sálfræðings ráðgjafateymisins.