Tímabókanir hjá sálfræðing 16. maí

Starfsfólk Ráðgjafarþjónustunnar
Starfsfólk Ráðgjafarþjónustunnar

Tímabókanir hjá sálfræðing 16. maí

Þriðjudaginn 16. maí verður Jóhann B. Arngrímsson sálfræðingur hjá ráðgjafarteymi Krabbameinsfélags íslands hjá okkur á Akureyri.

Þeir sem hafa áhuga og geta nýtt sér þessa þjónustu er bent á að bóka viðtal í síma 461-1470 eða senda póst á kaon@krabb.is.

Gefa þarf upp nafn og símanúmer.

Markmið Ráðgjafarþjónustunnar er að aðstoða fólk við að ná jafnvægi í lífinu eftir þær breyttu aðstæður sem greining krabbameins veldur. Hjá Ráðgjafarþjónustunni er boðið upp á fræðslu, viðtöl, faglega ráðgjöf, djúpslökun, ýmis námskeið og hagnýtar upplýsingar um réttindi fólks með krabbamein.