Undirritun leigusamnings
Laugardaginn 28. mars síðastliðinn var undirritaður leigusamningur milli Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis (KAON) annars vegar og Styrktar- og líknarsjóðs Oddfellowa (StLO) hins vegar um leigu húsnæðis á 3. hæð í Glerárgötu 24. Við sama tækifæri undirritaði Grófin Geðrækt samning um leigu á 4. hæð hússins. Styrktar sjóðurinn keypti 3. og 4. hæð hússins á síðasta ári og réðist í miklar og vel heppnaðar breytingar og endurbætur. Hæðirnar voru áður í eigu KPMG.
Það hafði legið fyrir um all langt skeið að finna þyrfti nýja aðstöðu fyrir starfsemi KAON. Illa hafði gengið að finna viðunandi lausn. Félagið átti í ítrekuðum viðræðum við fasteignafélög, einkum eitt þeirra, með afar dapurlegum árangri. Það var því mikill léttir þegar félagar í Oddfellowreglunni buðu KAON húsnæði í Glerárgötu 24.
Þetta nýja húsnæði félagsins er afar rúmgott, hlýlegt, heldur vel utan um starfsemina og skapar ýmsa möguleika. Aðstaða starfsmanna er góð og sama má segja um alla aðstöðu til að taka vel á móti þeim sem leita eftir eftir ráðgjöf eða annarri þjónustu. Til dæmis er mjög notaleg aðstaða fyrir jafningahópa sem þurfa ráðgjöf og eftirfylgni. Þá er gott fundarherbergi þar sem hægt er að hafa fræðslufundi fyrir minni hópa.
Á meðfylgjandi mynd sem tekin var við undirritun samninganna eru Pálína Sigrún Halldórsdóttir framkvæmdastjóri Grófarinnar, Heiðar Friðjónsson formaður framkvæmdaráðs Styrktar sjóðs og Pétur Þór Jónasson formaður KAON.