Út í lífið - Karlmenn

Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis fer af stað með námskeið fyrir karlmenn sem greinst hafa með krabbamein og eru að ljúka eða hafa nýlega lokið krabbameinsmeðferð.
Námskeiðið er byggt á aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar (HAM) og í tímum er farið í grunnatriði HAM og núvitund.
Hópurinn hittist á fimmtudögum frá kl. 09.00 -10.00. Námskeiðið hefst fimmtudaginn 25. október næstkomandi og er vikulega til 6. desember.
Leiðbeinendur eru Regína Ólafsdóttir sálfræðingur og Katrín Ösp Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur.
Hámark 10 manns í hópnum, skráning og spurningar á netfangið reginaola@krabb.is 
eða í síma 461-1470 milli kl.13-16, fyrir 25. október.