Viðtalstímar og erindi með Áslaugu hjúkrunar- og kynfræðing

Þann 7. maí verða í boði viðtöl hjá Áslaugu hjúkrunar- og kynfræðing og geta einstaklingar eða pör fengið tíma í ráðgjöf hjá henni. Til að bóka þarf að hafa samband við félagið.

Að auki verður hún með erindi þar sem hún fjallar um áskoranir sem pör takast á við í langtímasamböndum og þær lausnir sem hjálpað hafa þeim sem hafa greinst með krabbamein. Áslaug mun einnig segja frá bókinni sinni Lífið er kynlíf - Handbók kynfræðings um langtímasambönd og kynna aðferðir sem gera kynlífið ekki bara bærilegt, heldur frábært.

Hvenær: 7. maí kl. 14:00-15:30.

Hvar: Skrifstofu félagsins, Glerárgötu 24, 3.hæð.

Skráning: Hægt er að skrá sig hér, eða með því að hafa samband við félagið.

Erindið er opið öllum en skráning er nauðsynleg.

Um Áslaugu:  Áslaug Kristjánsdóttir er hjúkrunar- og kynfræðingur. Hún starfaði til margra ára á Landspítalanum en síðustu ár á einkastofu. Áslaug hefur í rúman áratug unnið við sambands- og kynlífs ráðgjöf með einstaklingum og pörum í fjölbreyttum samböndum. Hún hefur verið með fræðslu og ráðgjöf fyrir krabbameinsgreinda fyrir Krabbameinsfélagið og Ljósið í fjölda ára.

Verkefnið er styrkt af velunnurum Krabbameinsfélagsins.