Viðtöl í boði hjá félagsráðgjafa

Mánudaginn 19. september fáum við Hörpu Ásdísi félagsráðgjafa til okkar frá ráðgjafarteymi Krabbameinsfélagsins. Þeir sem hafa áhuga á að bóka viðtal hjá henni geta hringt og pantað í síma 461-1470. Harpa sinnir félagsráðgjöf og hefur lokið viðbótarnámi í hugrænni atferlismeðferð og hefur mikla reynslu á að vinna með kvíða og þunglyndi.