Viðtöl og fræðsla á Húsavík 14. maí

Vantar þig stuðning?

Ráðgjafar frá Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins verða á Húsavík, miðvikudaginn 14. maí. Viðtölin verða í Bjarnahúsi. Viðtölin eru í boði bæði fyrir einstaklinga sem greinst hafa með krabbamein, aðstandendur og syrgjendur. Þjónustan er öllum opin, endurgjaldslaust. Við hvetjum einstaklinga í nágrannar sveitarfélögunum til að nýta sér einnig þjónustuna.

Til að bóka viðtal er hægt að hringja í félagið í síma 461-1470 eða með því að senda póst á kaon@krabb.is

Einnig verður opið hús og fræðsla kl.15:00 í Bjarnarhúsi, allir velkomnir!

Verkefnið er styrkt af Velunnurum Krabbameinsfélagsins