Viðtöl og opið hús á Húsavík 27. ágúst

Vantar þig stuðning?

Ráðgjafi frá Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins verður á Húsavík, miðvikudaginn 27. ágúst. Viðtölin verða í Bjarnahúsi. Viðtölin eru í boði bæði fyrir einstaklinga sem greinst hafa með krabbamein, aðstandendur og syrgjendur. Þjónustan er öllum opin, endurgjaldslaust. Við hvetjum einstaklinga í nágrannar sveitarfélögunum til að nýta sér einnig þjónustuna.

Til að bóka viðtal er hægt að hringja í félagið í síma 461-1470 eða með því að senda póst á kaon@krabb.is

Einnig verður opið hús frá kl. 11:00 - 13:00 í Bjarnarhúsi, allir velkomnir!

Verkefnið er styrkt af Velunnurum Krabbameinsfélagsins