Vilt þú gerast félagsmaður?

Vilt þú gerast félagsmaður?

Með því að gerast félagsmaður í Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis styrkir þú beint þá frábæru þjónustu sem félagið veitir þeim sem greinast með krabbamein og aðstandendum þeirra. Einn af hverjum þremur íslendingum greinist með krabbamein á lífsleiðinni. Það er því mikilvægt að íbúar landsbyggðarinnar eigi félag sem aðstoðar þegar á þarf að halda.

Með því að vera félagsmaður ert þú ekki aðeins að lýsa stuðningi þínum við félagið og málstaðinn, heldur einnig krabbameinsgreinda og aðstandendur þeirra.

Félagsgjöldin eru ein af fjárhagslegum grunnstoðum Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis og gerir því kleift að halda uppi öflugu málsvarastarfi, stuðningi við krabbameinsgreinda, fræðslu- og forvarnarstarfi, samskiptum við önnur hagsmunafélög og opinberar stofnanir er málið varðar.  

Við þökkum því öllum þeim félögum sem leggja sitt af mörkum til félagsins, ykkar framlag skiptir miklu máli.

Félagsmenn Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis fá á næstu dögum reikning fyrir félagsgjaldinu sendan í heimabankann.

Félagsgjaldið er 4.500,- kr. á ári.

Þeir sem hafa áhuga á að gerast félagsmenn er bent á að klikka hér.

Með bestu kveðju, Stjórn og starfsfólk Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis.