Yoga nidra hádegisslökun

Í mars ætlar Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis að bjóða upp á Yoga nidra hádegisslökun.

 

Hildur Elínar Sigurðardóttir leiðir tímana.  Yoga nidra er djúpslökun/liggjandi hugleiðsla.
Hildur er kennari, Yoga Nidra kennari og starfar einnig með Reiki heilun.

Í tilefni mottumars viljum við sérstaklega hvetja karla til þess að taka þátt!

Mælt er með því að mæta með teppi og kodda, dýnur eru á staðnum.

Tímarnir verða 16. 23. 30. mars og 6.apríl, kl 12:10, í húsnæði félagsins, Glerárgötu 34, 2. hæð.

Skráning er í hvern tíma fyrir sig, í síma 461-1470 eða með tölvupósti á kaon@krabb.is.