Yoga nidra námskeið, hefst 9.janúar

Arnbjörg
Arnbjörg

Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis býður einstaklingum sem hafa greinst með krabbamein og aðstandendum þeirra upp á fjögurra tíma Yoga nidra námskeið.

“Yoga nidra er oft kallað jógískur djúpsvefn. Þátttakendur eru leiddir í djúpa slökun um allan líkamann til endurnæringar, hvíldar og jafnvægis. Ferðast er inn fyrir lög hugans að kyrrðarpunkti þar sem einfaldleikann er að finna. Leitast er við að gefa eftir inn í eðlilega virkni öndunarfæranna og losa spennu og streitu sem kann að vera til staðar eftir langvarandi óreglulegt og grunnt öndunarmynstur. Legið er á dýnu með teppi”.

Fyrirkomulag: Einu sinni í viku, á mánudögum, hefst 9. janúar og er fjögur skipti, frá kl.20:00-21:00.

Staðsetning: Lyngholt 20, 603 Akureyri – Ómur Yoga & Gongsetur.

Kennari: Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir.

Verð: Frítt fyrir þá sem eru skráðir félagsmenn hjá félaginu.

Námskeiðið er kostað af Heilsueflingarsjóð félagsins en Minningarsjóður Baldvins Rúnarssonar fjármagnar sjóðinn. 

Skráning: á kaon@krabb.is. Gefa þarf upp fullt nafn, netfang og símanúmer.