Dagskráin í ágúst
Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis veitir fólki sem hefur greinst með krabbamein og aðstandendum þeirra fjölbreytta þjónustu.
Félagið býður upp á stuðning og ráðgjöf í formi viðtala, skjólstæðingum að kostnaðarlausu. Boðið er upp á fræðslu, fjölbreytt námskeið, heilsueflingu, jafningjastuðning í karla- og kvennahópum og ýmsa aðra viðburði.
Eirberg er með aðstöðu á skrifstofunni og sér hjúkrunarfræðingur um að aðstoða konur sem hafa farið í fleygskurð eða brjóstnám með ráðleggingar um gervibrjóst, brjóstahaldara og ermar til þess að meðhöndla sogæðabjúg.
Til að panta tíma í viðtal eða Eirbergsþjónustu er hægt að hringja í síma: 461-1470 eða senda póst á kaon@krabb.is
Dagskráin í ágúst
4. ágúst kl. 09:00 - Opnum eftir sumarfrí.
11. ágúst kl. 13:10 - Yoga nidra byrjar.
18. ágúst kl. 13:00 - Opið hús, kynning á starfsemi komandi vetrar.
18. ágúst kl. 16:15 - Jafningjastuðningur fyrir karlmenn með Snæbirni byrjar.
20. ágúst - Starfsdagur, skrifstofan lokuð!
22. ágúst - Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka.
26. ágúst kl. 14:00 - Fjarnámskeið bjargráð við kvíða.
27. ágúst kl. 16:30 - Jafningjastuðningur konur framhaldshópur byrjar.
27. ágúst kl. 13:00 - kynning Salka og Birta.
Yoga nidra, alla þriðjudaga kl. 13:10 - Skráning nauðsynleg.
Gönguhópurinn Göngum saman gengur alla þriðjudaga kl. 17:00, upplýsingar um göngurnar má finna hér.
Hópastarf sem byrjar í ágúst
Jafningjastuðningur fyrir karlmenn. Hittingur fyrir karlmenn sem eru með krabbamein eða hafa nýlega lokið meðferð. Hópurinn mun hittast í 10 skipti, annan hvern þriðjudag kl. 16:15. Fyrsti hittingur er þriðjudaginn 18. ágúst. Umsjónaraðilar: Snæbjörn Ómar Guðjónsson sérfræðingur í geðhjúkrun. Síðasti hittingur er 22. desember.
Framhald: Jafningjastuðningur fyrir konur. Hittingur fyrir konur sem eru með krabbamein eða hafa nýlega lokið meðferð. Hópurinn mun hittast í 5 skipti, einn fimmtudag í mánuði kl. 16:30 -18:00. Fyrsti hittingur er fimmtudaginn 27. ágúst. Umsjónaraðilar: Hulda Sædís hjúkrunarfræðingur PhD. og ráðgjafi Krabbameinsfélagsin. Síðasti hittingur er 3. desember.
*Birt með fyrirvara um breytingar.
Nánari upplýsingar um viðburðina má finna í viðburðardagatali félagsins hér.
Ekki hika við að hafa samband fyrir frekari upplýsingar s: 461-1470 eða á kaon@krabb.is