Dagskráin í nóvember

Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis veitir fólki sem hefur greinst með krabbamein og aðstandendum þeirra fjölbreytta þjónustu.

Félagið býður upp á stuðning og ráðgjöf í formi viðtala, skjólstæðingum að kostnaðarlausu. Boðið er upp á fræðslu, fjölbreytt námskeið, heilsueflingu, jafningjastuðning í karla- og kvennahópum og ýmsa aðra viðburði.

Eirberg er með aðstöðu á skrifstofunni og sér hjúkrunarfræðingur um að aðstoða konur sem hafa farið í fleygskurð eða brjóstnám með ráðleggingar um gervibrjóst, brjóstahaldara og ermar til þess að meðhöndla sogæðabjúg.

Til að panta tíma í viðtal eða Eirbergsþjónustu er hægt að hringja í síma:  461-1470 eða senda póst á kaon@krabb.is

 

Dagskráin í nóvember

4. nóvember kl. 10:00 - Leshópur.

4. nóvember kl. 16:00 - Dalvík, samvera.

18. nóvember kl. 10:00 og 13:00 - Snyrtinámskeið.

26. nóvember kl. 13:00 - Hjálpartækja kynning.

 

Yoga nidra er alla miðvikudaga kl. 16:20 - Skráning nauðsynleg

Gönguhópurinn Göngum saman gengur alla þriðjudaga kl. 17:00, upplýsingar um göngurnar má finna hér.

 

Hópastarf heldur áfram

Nýr hópur: Jafningjastuðningur fyrir karlmenn. Hittingur fyrir karlmenn sem eru með krabbamein eða hafa nýlega lokið meðferð. Hópurinn mun hittast í 10 skipti, annan hvern þriðjudag kl. 16.15. Umsjónaraðilar: Snæbjörn Ómar Guðjónsson sérfræðingur í geðhjúkrun og Marta Kristín KAON.

Nýr hópur: Jafningjastuðningur fyrir konur. Hittingur fyrir konur sem eru með krabbamein eða hafa nýlega lokið meðferð. Hópurinn mun hittast í 9 skipti, annan hvern fimmtudag kl. 16.15. Umsjónaraðilar: Hulda Sædís hjúkrunarfræðingur PhD. og ráðgjafi Krabbameinsfélagsins og Marta Kristín KAON.

Skapandi handverk og spjall: Hópurinn hittist annan hvorn fimmtudag kl.13:30 á Kaffihúsinu í Menningarhúsinu Hofi, 2. hæð. Konurnar koma gjarnan með handverk en margar mæta einfaldlega til þess að njóta félagsskaparins og kaffisopans. Sjálfboðaliði leiðir hópinn, nýir félagar velkomnir! Kaffi og spjall í góðum félagsskap.

Kátir karlar: Stuðningshópur fyrir karla sem greinst hafa með krabbamein. Hópurinn hittist á laugardögum frá kl.13:00-15:00 í húsnæði Ferðafélags Akureyrar að Strandgötu 23. Það þarf ekki að skrá sig heldur er nóg að mæta. Sjálfboðaliði leiðir hópinn, nýir félagar velkomnir! Kaffi og spjall í góðum félagsskap.

*Birt með fyrirvara um breytingar. 

Nánari upplýsingar um viðburðina má finna í viðburðardagatali félagsins hér.

Ekki hika við að hafa samband fyrir frekari upplýsingar s: 461-1470 eða á kaon@krabb.is