Dagskráin í september
Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis veitir fólki sem hefur greinst með krabbamein og aðstandendum þeirra fjölbreytta þjónustu.
Félagið býður upp á stuðning og ráðgjöf í formi viðtala, skjólstæðingum að kostnaðarlausu. Boðið er upp á fræðslu, fjölbreytt námskeið, heilsueflingu, jafningjastuðning í karla- og kvennahópum og ýmsa aðra viðburði.
Eirberg er með aðstöðu á skrifstofunni og sér hjúkrunarfræðingur um að aðstoða konur sem hafa farið í fleygskurð eða brjóstnám með ráðleggingar um gervibrjóst, brjóstahaldara og ermar til þess að meðhöndla sogæðabjúg.
Til að panta tíma í viðtal eða Eirbergsþjónustu er hægt að hringja í síma: 461-1470 eða senda póst á kaon@krabb.is
Dagskráin í september
3. sep kl. 13:30 - Nýr hópur: Jafningjastuðningur fyrir konur byrjar.
5. sep kl. 14:00 - Hver grípur þig, notaleg stund í Kjarnaskógi í tilefni af Gulum september.
8. sep kl. 17:00 - Afmæli Krabbameinsfélagsins í Hofi.
9. sep kl. 14:00 - Fjarnámskeið: óttinn við að endurgreinast.
10. sep kl. 13:30 - Skapandi handverk og spjall byrjar í Hofi.
12. sep kl. 13:00 - Kátir karlar byrja að hittast.
17. sep - Viðtöl á Húsavík.
22. sep kl. 17:00 - Aðstandendur í veikindum - hlutverk sem enginn velur, erindi.
30. sep kl. 15:00 - Fjarnámskeið: bætt rútína, betri svefn, betri líðan.
30. sep - Viðtöl á Sauðárkrók.
30. sep kl. 16:00 - Næring og mataræði með Söru Mist, erindi.
Yoga nidra, alla þriðjudaga kl. 13:10 - Skráning nauðsynleg.
Gönguhópurinn Göngum saman gengur alla þriðjudaga kl. 17:00, upplýsingar um göngurnar má finna hér.
Hópastarf
Jafningjastuðningur fyrir karlmenn. Hittingur fyrir karlmenn sem eru með krabbamein eða hafa nýlega lokið meðferð. Hópurinn mun hittast í 10 skipti, annan hvern þriðjudag kl. 16:15. Fyrsti hittingur er þriðjudaginn 18. ágúst. Umsjónaraðilar: Snæbjörn Ómar Guðjónsson sérfræðingur í geðhjúkrun. Síðasti hittingur er 22. desember.
Framhald: Jafningjastuðningur fyrir konur. Hittingur fyrir konur sem eru með krabbamein eða hafa nýlega lokið meðferð. Hópurinn mun hittast í 5 skipti, einn fimmtudag í mánuði kl. 16:30 -18:00. Fyrsti hittingur er fimmtudaginn 27. ágúst. Umsjónaraðilar: Hulda Sædís hjúkrunarfræðingur PhD. og ráðgjafi Krabbameinsfélagsin. Síðasti hittingur er 3. desember.
Nýr hópur: Jafningjastuðningur fyrir konur. Hittingur fyrir konur sem eru með krabbamein eða hafa nýlega lokið meðferð. Hópurinn mun hittast í 8 skipti, annan hvern fimmtudag kl. 13:30 - 15:00. Fyrsti hittingur er fimmtudaginn 3. september. Umsjónaraðilar: Hulda Sædís hjúkrunarfræðingur PhD. og ráðgjafi Krabbameinsfélagsins. Síðasti hittingur er 10. desember.
Kátir karlar. Stuðningshópur fyrir karla sem greinst hafa með krabbamein. Hópurinn hittist alla laugardaga frá kl.13:00-15:00 í húsnæði Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis, Glerárgötu 24, 3. hæð. Fyrsti hittingur er laugardaginn 12. september. Það þarf ekki að skrá sig heldur er nóg að mæta. Sjálfboðaliði leiðir hópinn, nýir félagar velkomnir! Kaffi og spjall í góðum félagsskap.
Skapandi handverk og spjall. Hópurinn hittist annan hvorn fimmtudag kl.13:30 á Majó í Menningarhúsinu Hofi, 2. hæð. Fyrsti hittingur er fimmtudaginn 10. september. Konurnar koma gjarnan með handverk en margar mæta einfaldlega til þess að njóta félagsskaparins og kaffisopans. Sjálfboðaliði leiðir hópinn, nýir félagar velkomnir! Kaffi og spjall í góðum félagsskap.
*Birt með fyrirvara um breytingar.
Nánari upplýsingar um viðburðina má finna í viðburðardagatali félagsins hér.
Ekki hika við að hafa samband fyrir frekari upplýsingar s: 461-1470 eða á kaon@krabb.is