Dagskráin í Bleikum október
Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis veitir fólki sem hefur greinst með krabbamein og aðstandendum þeirra fjölbreytta þjónustu.
Félagið býður upp á stuðning og ráðgjöf í formi viðtala, skjólstæðingum að kostnaðarlausu. Boðið er upp á fræðslu, fjölbreytt námskeið, heilsueflingu, jafningjastuðning í karla- og kvennahópum og ýmsa aðra viðburði.
Eirberg er með aðstöðu á skrifstofunni og sér hjúkrunarfræðingur um að aðstoða konur sem hafa farið í fleygskurð eða brjóstnám með ráðleggingar um gervibrjóst, brjóstahaldara og ermar til þess að meðhöndla sogæðabjúg.
Til að panta tíma í viðtal eða Eirbergsþjónustu er hægt að hringja í síma: 461-1470 eða senda póst á kaon@krabb.is
Dagskráin í Bleikum október
5. okt - Frítt í skógarböðin.
6. okt kl. 16:30 - Dalvík, samvera og erindi með Jenný.
7. okt kl. 10:30 - Leshópur.
7. okt kl. 15:00-16:00 - Fjarnámskeið, bætt rútína, betri svefn, betri líðan 1/3.
8-11. okt - Dekurdagar.
8. okt kl. 20:00 - Kynningarbás á Glerártorgi.
9. okt kl. 20:00 - Kynningarbás í Centro.
11. okt kl. 18:00-19:00 - Hljóðslökun í vatni með Arnbjörgu.
13. okt kl. 17:00 - Kynning og erindi á Blönduósi.
14. okt kl. 10-12 og 13-15 - Snyrtinámskeið.
15. okt - Viðtöl á Húsavík og erindið Aðstandendur.
20. okt - Eirbergsdagur.
21. okt - Bleiki dagurinn.
22. okt - Edda Björgvins, Húmor og hamingja - dauðans alvara!
23. okt kl. 20:00 - Tónleikar í Hofi.
28. okt - Viðtöl á Sauðárkrók.
28. okt kl. 14:00-16:00 - Fjarnámskeið, núvitund og samkennd.
Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis í samstarfi við Sölku bíður skjólstæðingum sínum á fjögur eftirfarandi námskeið í bleikum október. Sjá hér!
Yoga nidra, alla þriðjudaga kl. 13:10 - Skráning nauðsynleg.
Gönguhópurinn Göngum saman gengur alla þriðjudaga kl. 17:00, upplýsingar um göngurnar má finna hér.
Hópastarf
Jafningjastuðningur fyrir karlmenn. Hittingur fyrir karlmenn sem eru með krabbamein eða hafa nýlega lokið meðferð. Hópurinn mun hittast í 10 skipti, annan hvern þriðjudag kl. 16:15. Fyrsti hittingur er þriðjudaginn 18. ágúst. Umsjónaraðilar: Snæbjörn Ómar Guðjónsson sérfræðingur í geðhjúkrun. Síðasti hittingur er 22. desember.
Framhald: Jafningjastuðningur fyrir konur. Hittingur fyrir konur sem eru með krabbamein eða hafa nýlega lokið meðferð. Hópurinn mun hittast í 5 skipti, einn fimmtudag í mánuði kl. 16:30 -18:00. Fyrsti hittingur er fimmtudaginn 27. ágúst. Umsjónaraðilar: Hulda Sædís hjúkrunarfræðingur PhD. og ráðgjafi Krabbameinsfélagsin. Síðasti hittingur er 3. desember.
Nýr hópur: Jafningjastuðningur fyrir konur. Hittingur fyrir konur sem eru með krabbamein eða hafa nýlega lokið meðferð. Hópurinn mun hittast í 8 skipti, annan hvern fimmtudag kl. 13:30 - 15:00. Fyrsti hittingur er fimmtudaginn 3. september. Umsjónaraðilar: Hulda Sædís hjúkrunarfræðingur PhD. og ráðgjafi Krabbameinsfélagsins. Síðasti hittingur er 10. desember.
Aðstandendahópur. Hópur fyrir aðstandendur. Hópurinn hittist 5 sinnum, annan hvorn miðvikudag í húsnæði félagsins, Glerárgötu 24, 3. hæð. Fyrsti hittingur er 30. september kl. 17:00. Umsjónaraðilar: Snæbjörn Ómar Guðjónsson sérfræðingur í geðhjúkrun og Jenný Valdimarsdóttir hjúkrunarfræðingur og ráðgjafi krabbameinsfélagsins.
Kátir karlar. Stuðningshópur fyrir karla sem greinst hafa með krabbamein. Hópurinn hittist alla laugardaga frá kl.13:00-15:00 í húsnæði Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis, Glerárgötu 24, 3. hæð. Fyrsti hittingur er laugardaginn 12. september. Það þarf ekki að skrá sig heldur er nóg að mæta. Sjálfboðaliði leiðir hópinn, nýir félagar velkomnir! Kaffi og spjall í góðum félagsskap.
Skapandi handverk og spjall. Hópurinn hittist tvo fimmtudaga í mánuði kl.13:30 í félagsmiðstöðinni Sölku, Víðilundi 22. Konurnar koma gjarnan með handverk en margar mæta einfaldlega til þess að njóta félagsskaparins og kaffisopans. Sjálfboðaliðar leiða hópinn, nýir félagar velkomnir! Kaffi og spjall í góðum félagsskap. Dagsetningar: 1. okt, 15. okt, 5. nóv, 19. nóv og 3. des.
Leshópur. Hópurinn hittist fyrsta miðvikudag í hverjum mánuði kl.10:30 í húsnæði félagsins, Glerárgötu 24, 3. hæð. Fyrsti hittingur er miðvikudaginn 7. október. Margrét Baldursdóttir sjálfboðaliði stýrir hópnum. Það þarf ekki að skrá sig í hópinn og nóg er bara að mæta og taka þátt. Tekið er vel á móti nýjum meðlimum. Bækur, spjall & kaffi. Næstu hittingar eru: 4. nóvember og 2. desember.
*Birt með fyrirvara um breytingar.
Nánari upplýsingar um viðburðina má finna í viðburðardagatali félagsins hér og endilega fylgið okkur á facebook.
Ekki hika við að hafa samband fyrir frekari upplýsingar s: 461-1470 eða á kaon@krabb.is